Hans ær og kýr

– höfundareinkenni Bergsveins Birgissonar

  • Kjartan Már Ómarsson
Efnisorð: Bergsveinn Birgisson, íslenskar bókmenntir, höfundarfræði, póstmódernismi, heterótópía

Abstract

Í greinninni er litið yfir höfundarferil Bergsveins Birgissonar allt frá árinu 1992 til 2010. Þá er sér í lagi vikið að þremur skáldsögum hans sem komu út á tæpum áratug, Landslag er aldrei asnalegt (2003), Handbók um hugarfar kúa (2009) og Svar við bréfi Helgu (2010) og dregin fram þau höfundareinkenni sem segja má að einkenni skrif Bergsveins á þessum árum. Litið er lauslega yfir sögu höfundarfræðanna í þeim tilgangi og dreginn fram rauður þráður sem segja má að bindi þessar skáldsögur saman. Niðurstaðan er sú að skáldleg notkun á tungumáli, þemu um brostnar fjölskyldur, þunglyndi og einangrun og gagnrýnn tónn um íslensk þjóðmál hverfist um þá höfundarmiðju sem Bergsveinn staðsetur sig í á tímabilinu.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biography

Kjartan Már Ómarsson

Doktorsnemi í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Útgefið
2020-09-08