Kóralína og mæður hennar. Um vandkvæði þess að skipta um móður í Kóralínu eftir Neil Gaiman
Efnisorð:
Kóralína, Neil Gaiman, nútímaævintýri, sálgreining, hið ókennilega, samband móður og dóttur
Abstract
Í greininni er fjallað um nútímaævintýrið Coraline (2002). Kenningarammi sálgreiningarinnar hefur verið áberandi í fræðilegri umræðu um þessa bók frá upphafi og þessi grein er engin undantekning frá því aðallega er byggt á kenningum Sigmunds Freud um „hið ókennilega“ og Juliu Kristevu um „úrkastið“ auk femínískrar gagnrýni Barböru Creed á „the monstrous feminine“. Fjallað verður um samband mæðra og dætra í bókinni og þroskasögu Kóralínu sem er ellefu ára telpa að brjótast undanvaldi móður sinnar. Sú uppreisn fer fram í stórkostlegri sviðsmynd þar sem „hinmóðirin“, illviljuð og gráðug, ræður ríkjum. Niðurstaða Kóralínu er að hin raunverulega móðir, „nógu góða móðirin“, sé allt sem telpa þarf.
Downloads
Download data is not yet available.