Dósafríða, flandrari og hrjáð dóttir

Um Systu megin eftir Steinunni Sigurðardóttur

  • Guðrún Steinþórsdóttir
Efnisorð: Steinunn Sigurðardóttir, Systu megin, vanræksla, dóttur-móður samband, tráma, hrollvekja, flandrari, fátækt

Abstract

Leiksagan Systu megin (2021) eftir Steinunni Sigurðardóttur segir frá bláfátæku utangarðskonunni Systu sem dregur fram lífið með dósasöfnun og á að baki erfiða og flókna æsku. Í þessari grein er sjónum beint að Systu og þeirri höfnun sem hún má þola, jafnt í víðu samhengi og þröngu sem og í fortíð og nútíð. Rætt er um persónuna sem flandrara og fjallað um þá samfélagslegu útskúfun og skömm sem hún upplifir vegna fátæktar. Sérstaklega er skoðað hvernig samfélagið og fjölskyldutengsl Systu hefta frelsi hennar og ýta undir að hún gegni tilteknum hlutverkum. Þá er einnig gerð grein fyrir því hvernig Steinunn nýtir sér ýmis einkenni hrollvekjuhefðarinnar til að varpa ljósi á vanræksluna sem Systa má þola af hálfu móður sinnar og dregið fram hvernig afleiðingar áfalla í bernsku geta haft langvarandi áhrif á líf einstaklings.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biography

Guðrún Steinþórsdóttir

Doktor í íslenskum bókmenntum.

Útgefið
2022-10-31