Sjálfstæðar mæður

Ráðskonustarfið sem bjargráð fyrir einstæðar mæður á síðari hluta 20. aldar

  • Dalrún Kaldakvísl
Efnisorð: einstæðar mæður, ráðskonur, sveitaheimili, munnleg saga, femínísk saga

Abstract

Í þessari grein er sjónum beint að sögu einstæðra mæðra sem gerðust ráðskonur í sveit á síðari hluta 20. aldar. Greinin byggir á viðtölum sem tekin voru við fyrrum ráðskonur, í því skyni að miðla sjónarhorni kvennanna sjálfra. Rýnt er í ástæðurnar að baki því hvers vegna konur réðu sig í ráðskonuvist á sveitaheimili á þessu tímabili Íslandssögunnar, sem einkenndist af sívaxandi sókn kvenna á vinnumarkaðinn og mikilli uppbyggingu velferðarkerfisins. Fjallað er um hvernig ráðskonustarfið þjónaði sem hálfgildings félagslegt úrræði fyrir einstæðar mæður sem voru á hrakhólum í efnahagslegu og atvinnulegu tilliti – úrræði sem gagnaðist mörgum einstæðum mæðrum vel en var engu að síður brigðult líkt og sögur þeirra sýna.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biography

Dalrún Kaldakvísl

Doktor í sagnfræði

Útgefið
2024-04-29