Lokhljóðaframburður á Norðurlandi

Ný greining á gömlum gögnum

  • Margrét Guðmundsdóttir
Efnisorð: Rannsókn Björns Guðfinnssonar, framburður, tíðni, önghljóðaframburður, lokhljóðaframburður

Abstract

Í þessari grein er unnið úr gögnum Björns Guðfinnssonar með öðrum aðferðum en hann notaði sjálfur í framburðarrannsókn sinni á 5. áratug 20. aldar. Athyglin beinist að önghljóða- og lokhljóðaframburði á undan ð, það er í orðum eins og hafði og sagði. Lokhljóðaframburðurinn var algengastur á Norðurlandi og voru skoðuð gögn Björns frá Strandasýslu til og með Norður-Þingeyjarsýslu. Þær niðurstöður sem hér eru kynntar felast í tölum um heildartíðni framburðarins í einstökum sýslum og stærstu bæjum en upplýsingar sem áður lágu fyrir fólu í sér skiptingu þátttakenda í þrjá hópa, þá sem notuðu hreinan önghljóðaframburð, hreinan lokhljóðaframburð og þá sem höfðu blandaðan framburð, það er bæði afbrigðin. Með tíðnitölum er leitast við að gera öðrum rannsakendum kleift að bera niðurstöður Björns saman við aðrar og nýrri framburðarrannsóknir.

##plugins.generic.usageStats.downloads##

##plugins.generic.usageStats.noStats##

Author Biography

Margrét Guðmundsdóttir

Málfræðingur við Hugvísindasvið Háskóla Íslands

Útgefið
2026-04-28