Að dvelja í tímanum

Um ást og umhyggju í tilgátusögunni Rúmmálsreikningur

  • Sigrún Alba Sigurðardóttir
Efnisorð: Rúmmálsreikningur eftir Solvej Balle, tilgátuskáldskapur, pósthúmanismi, samsveifla, heterótópíur, ást, umhyggja, aðlögun

Abstract

Skáldsagan Rúmmálsreikningur (Om udregning af rumfang) eftir danska rithöfundinn Solvej Balle hefur vakið mikla athygli í hinum alþjóðlega bókmenntaheimi á síðustu árum. Skáldsagan er hugsuð sem verk í sjö hlutum og á síðustu fimm árum hafa sex bindi komið út í Danmörku. Skáldsagan segir frá Töru Selter, sem situr föst í tímanum og upplifir sama daginn, 18. nóvember, aftur og aftur. Eftir því sem líður á söguna hittir Tara fleiri og fleiri sem sitja fastir í 18. nóvember og deila með henni hliðarveruleika í afmörkuðu tímarými utan hins hefðbundna tíma. Balle hefur sjálf skilgreint söguna sem tilgátusögu sem sé drifin áfram af hugmyndum. Skáldsagan á í stöðugu samtali við samtíma sinn og í greininni eru færð rök fyrir því hvernig hún snertir á djúpan hátt á ýmsum málum er varða líf okkar í samtímanum, ekki síst loftslagsbreytingum og ágangi mannsins á auðlindir jarðar, auk þess sem lesa má hana sem hljóðláta gagnrýni á framfarahyggju, áherslu á skilvirkni, framleiðslu og vald hins sterka sem einkennir og mótar samfélag okkar í dag. Í greininni er hugtak Michels Foucaults um heterótópíur, áhersla póst húmanískra fræða á jarðnesk tengsl, aðlögun, ást og umhyggju, sem og hugtak Hartmuts Rosa um samsveiflu notuð til að greina þennan ímyndaða hliðarveruleika og sýnt fram á hvernig Balle gagnrýnir og afbyggir hugmyndina um línulega framvindu og framfarir og nýtir sér aðferðir sem eiga ýmislegt sameiginlegt með burðarpokakenningu Ursulu Le Guin um skáldskap til að sýna okkur fram á að það líf sem við lifum nú sé ekki endilega það besta mögulega.

##plugins.generic.usageStats.downloads##

##plugins.generic.usageStats.noStats##

Author Biography

Sigrún Alba Sigurðardóttir

Doktor í dönsku, sjálfstætt starfandi fræðimaður og rithöfundur

Útgefið
2026-04-28