Til móts við dauðann í Brennu-Njáls sögu

  • Torfi H. Tulinius
Efnisorð: Brennu-Njáls saga, feigð, formgerð frásagna, dauðahvatir, Freud, Peter Brooks

Abstract

Margar persónur Brennu-Njáls sögu mæta sjálfviljugar dauða sínum. Feigð er hugleikin höfundi hennar. Leitað er í smiðju bókmenntafræðingsins Peter Brooks og upphafsmanns sálgreiningarinnar, Sigmund Freuds, til að skilja betur hvernig þetta áleitna minni í sögunni tengist heildarbyggingu hennar. Stuðst er við kenningar Brooks um „meistarafléttu Freuds“ þar sem átök dauðahvata og lífshvata í sálarlífinu eru hliðstæða við grunnformgerð allra frásagna. Með því er nýju ljósi varpað á þetta einstæða listaverk.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biography

Torfi H. Tulinius

Prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Útgefið
2021-05-07