„Af hverju fæ ég ekki að kynna safnið mitt í sjónvarpinu?“ Stutt greinargerð um Íslenska dýrasafnið

  • Katla Kjartansdóttir

Abstract

Í greininni er farið í stuttu máli yfir sögu íslenska dýrasafnis sem starfrækt var frá 1970 - 1978 í Breiðfirðingabúð á Skólavörðustíg. Þar voru einkum til sýnis uppstoppuð íslensk dýr á borð við kindur, fugla, ísbirni, hesta og einn api. Fjallað er um hlutverk þess, umræðu í samtímafjölmiðlum, viðtökur safngesta og tímabundna lokun safnsins vegna gjaldþrots. Þá er varpað ljósi á sögu einstakra safngripa, ævisaga og framhaldslíf þeirra stuttlega rakin. Meðal annars er notast við nálgun póst-húmískra kennismiða sem fjallað hafa um mikilvægt hlutverk uppstoppaðra dýra og náttúruminjasafna, þegar kemur að því að vekja athygli á fækkun tegunda og jafnvel útrýmingu.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biography

Katla Kjartansdóttir

Doktorsnemandi í safnafræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Útgefið
2020-05-08