Vestfirskur framburður

Staða, greinileiki og alþýðuhugmyndir

  • Ása Bergný Tómasdóttir
  • Stefanie Bade

Abstract

Í þessari grein er fjallað um vestfirsk framburðareinkenni og hugmyndir fólks um þau. Sagt er frá niðurstöðum greiningar á megindlegum og eigindlegum gögnum sem safnað var í rannsóknarverkefninu Svæðisbundinn framburður, viðhorf og málbreytingar í rauntíma (SVIÐ). Vestfirskur framburður einkennist af því að bera fram hljóðönin /a, ö, e/ sem einhljóð þegar eftir fara samhljóðaklasarnir /ng/ og /nk/ en flestir málhafar bera þar fram tvíhljóð. Rannsóknin byggir á gögnum frá Vestfirðingum sem tóku þátt í netkönnun (n = 77) og einstaklingviðtölum (n = 11). Þátttakendurnir í netkönnuninni luku framburðarprófi, hlustuðu á svæðisbundinn framburð annan en sinn eigin og svöruðu spurningum um viðhorf til eigin framburðar. Í einstaklingsviðtölunum voru kannaðar nánar hugmyndir þátttakenda og viðhorf til eigin framburður til að álykta um möguleg áhrif viðhorfa á þróun svæðisbundins framburðar. Niðurstöðurnar benda til þess að vestfirsk framburðareinkenni séu á undanhaldi. Einhljóðaframburður á /a/ og /ö/ fyrirfinnst enn en hans gætir frekar hjá eldri málhöfum en yngri. Þrátt fyrir lækkandi tíðni er greinileiki vestfirsks framburðar þó nokkur, en talsvert meiri meðvitund er að finna meðal eldri kynslóða en yngri. Við greiningu á alþýðuhugmyndum á vestfirsku kemur í ljós að þátttakendur tengja vestfirsku að öllu leyti við einhljóðaframburð á /a/. Vísbendingar eru um að tengsl við upprunastað hafi áhrif á viðhorf til vestfirsku og áframhaldandi notkun hennar. Að auki birtust þrjú þemu hjá þátttakendum sem tengjast sambandi milli vestfirsks einhljóðaframburðar og stafsetningar, hugmyndum um dæmigerðan framburð þjóðþekktra einstaklinga og mati á notkun vestfirsku sem ýktri.

Downloads

Download data is not yet available.

Author Biographies

Ása Bergný Tómasdóttir

Doktorsnemi í málvísindum við Oslóarháskóla.

Stefanie Bade

Aðjunkt í íslensku við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands

Published
2026-04-28